HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
HR Hlaðvarpið
Latest Episodes
Verkfræðivarpið// 44. þáttur - David Finger
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræða Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur við David Christian Finger, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. David er vísindamaður, kennari og ráðgjafi með doktorspróf í náttúruvísindum frá...
Verkfræðivarpið// 43. þáttur - Sveinbjörn Jónsson
Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræðum við við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026. Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur m...
Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni
Gestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson, íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi....