HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
HR Hlaðvarpið
Verkfræðivarpið// 41. þáttur - Jónas Ketilsson
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Gestur Verkfræðivarpsins að þessu sinni var Jónas Ketilsson, yfirverkefnisstjóri stækkunar ÞeistareykjastöðvarLandvirkjunar.
Á síðustu þremur árum hefur hann gegnt lykilhlutverki í þróun nýrrar tækni, leitt umbreytingu fjölþættra leyfis- og umhverfisstjórnunarþátta, þróun og innleiðingu alþjóðlegra viðmiða auk samþættingar fjölmargra verkefna og hagsmunaaðila tengdri stækkun virkjunarinnar.
Nýverið hlaut hann svonefnda A vottun IPMA, hæstu alþjóðlegu viðurkenningu IPMA fyrir forystu í áætlanastjórnun mjög flókinna verkefnasafna.
UM VERKFRÆÐIVARPIÐ
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.