HR Hlaðvarpið

Frumkvöðlavarp HR // 9. þáttur: Garðar Stefánsson - GOOD GOOD

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Í þessum þætti ræðir Svava Björk Ólafsdóttir við Garðar Stefánsson, framkvæmdarstjóra og meðstofnanda GOOD GOOD vorið 2023.

Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur háskólanema á Íslandi, þar sem á bilinu 500-600 nemendur koma saman vor hvert í þriggja vikna frumkvöðlaspretti. Viðmælendur okkar segja frá sinni frumkvöðlavegferð, gefa innsýn inn í nýsköpunarferlið og miðla reynslu.