HR Hlaðvarpið

Verkfræðivarpið // 4. þáttur: Árni Sigurður Ingason hjá Grein Research

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University Season 1 Episode 4

Gestur 4. þáttar Verkfræðivarpsins er Dr. Árni Sigurður Ingason vélaverkfræðingur. Hann er framkvæmdastjóri Grein Research, sprotafyrirtækis á sviði efnistækni, sem sprottið er upp úr rannsóknum Árna Sigurðar og samstarfsfólks. Grein Research hannar og smíðar frumgerðir efna samkvæmt óskum kröfuharðra viðskiptavina, sem yfirleitt eru erlend stórfyrirtæki eða rannsóknahópar. Efnin eru búin til með því að byggja upp lög af atómum sem saman mynda þunnar húðir á yfirborði og útkoman eru efni með sértæka eiginleika, til dæmis varðandi tæringarþol, rafleiðni, varmaleiðni og fleira.

Verkfræðivarpið er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Umsjónarmenn syrpunnar eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru kennarar og fræðimenn við verkfræðideild HR. Í þessari hlaðvarpsþáttaröð leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptasvið HR sem er umsjónaraðili hlaðvarpsins (samskipti@hr.is). Framleiðendur eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.